SKÁLDSAGA

Sögur herlæknisins V

Sagan Galdrakonan er fimmta bókin af átján í hinum stóra sagnabálki finnska skáldrisans Zachariasar Topeliusar sem hann kallaði Sögur herlæknisins. Er þetta stórbrotin örlaga- og fjölskyldusaga sem spannar sögu Svía og Finna í tvær aldir eða frá því Gústaf Adólf kemst til valda allt fram á daga Gústafs þriðja. Meginþráður sögunnar er hringur einn sem býr yfir ákveðnum töframætti og minnir það um margt á Hringadróttinssögu Tolkiens. Umgjörð sögunnar er mjög hugvitssamleg, en Topelius lætur gamlan herlækni segja söguna og er aðkoma hans skemmtileg saga inni í sögunni sem gefur höfundinum ákveðið frelsi til að koma með utanaðkomandi skýringar og skoðanir inn í meginsöguna. Sniðugt stílbragð sem gengur fyllilega upp í höndum Topeliusar. Sagan var þýdd af snillingnum Matthíasi Jochumssyni.


HÖFUNDUR:
Zacharias Topelius
ÚTGEFIÐ:
2017
BLAÐSÍÐUR:
bls. 128

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :